Einbýlishús - 109 Reykjavík
ÞETTA ER TEST EIGN FYRIR NÝTT KERFI
Einbýlishús á 2 hæðum með stórum grónum garði og bílskúr á 3 hæðum (sjón er sko sannarlega sögu ríkari). Frábært fjölskylduhús með 5 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 2 stofum en auðveldlega mætti breyta sjónvarpsholi á efri hæð í svefnherbergi. Húsið er skráð 229,8 og þar af er bílskúrinn 35 fm.
Smelltu hér til að skoða teikningar af eigninni
Þetta skemmtilega einbýlishús á tveimur hæðum stendur við Jakasel 2. Hverfið er gróið og góðir skólar í nánd. Stutt er í alla grunnþjónustu og fjölbreytt þjónusta til staðar. Staðsetningin er einkum góð þegar horft er til samgönguleiða. Einnig er stutt í náttúruna og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir til allra átta. Gróinn og hlýlegur garður umlykur húsið og hellulagt bílaplan með hita er fyrir framan bílskúrinn. Bílskúr á þremur hæðum fylgir eigninni.
Gengið er inn um forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Forstofuherbergi er með parketi og skápum. Baðherbergi er innaf forstofu. Það er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, dúkur inn í sturtu að hluta, salerni og gluggi. Eldhús er mjög rúmgott, U-laga innrétting með efri og neðri skápum. Stór borðkrókur og góðir gluggar, korkur á gólfi. Innaf eldhúsi er búr. Þvottahús er einnig innaf eldhúsi, mjög rúmgott og innaf þvottahúsi er geymsla/þurrkherbergi, málað gólf, gluggar og gengið út í garð. Stofan er í framhaldi af eldhúsinu, hún er mjög rúmgóð með parketi á gólfi og gengið út í garð. Við hlið stofu er gengið upp timburstiga á efri hæðina.
Efri hæð: 4 svefnherbergi, öll með skápum og parketi, frá hjónaherbergi er gengið út á svalir. Hol á hæðinni sem mætti nýta sem sjónvarpshol eða breyta í 6. svefnherbergið. Rúmgott baðherbergi á hæðinni með baðkari, ljósri innréttingu og glugga.
Bílskúrinn er draumur dundarans. Bílskúrinn er með flísum á gólfi, heitu og köldu vatni og rafmagnir. Það eru 2 gönguhurðir, ein inn í garðinn og ein frá bílaplani. Undir bílskúrnum er flísalagt rými með lofthæð ca 1.90 sem nýtist mjög vel sem t.d. hobbýherbergi. Yfir bílskúrnum er mjög rúmgott geymsluloft.
Garðurinn er að mestu hellulagður og með grasi. Hann er því viðhaldsminni en margir garðar.
Þetta er virkilega spennandi hús sem er staðsett innst í botnlanga í þessu vinsæla fjölskylduhverfi. Garðurinn er stór og gróinn. Þetta skemmtilega hús er kjörið fjölskylduhreiður þar sem rýmin eru stór og umhverfið gróið og nærandi.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-0402 eða í gegnum tölvupóstfangið asdis@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Tegund | Einbýlishús |
Verð | Tilboð |
Fasteignamat | 126.500.000 kr |
Brunabótamat | 93.550.000 kr |
Stærð | 229,8 fermetrar |
Herbergi | 7 |
Svefnherbergi | 2 |
Baðherbergi | 2 |
Byggingarár | 1984 |
Lyfta | nei |
Bílskúr | já |
Bílskýli | nei |
Garður | já |